Fréttir

Konur í meirihluta stjórnar körfunnar

Körfubolti | 26.04.2019
Nýkjörin stjórn og varamaður Kkd. Vestra: Harpa Guðmundsdóttir, Ingi Björn Guðnason, Birna Lárusdóttir, Ingólfur Þorleifsson, Helga Salóme Ingimarsdóttir og Gunnlaugur Gunnlaugsson, varamaður.
Nýkjörin stjórn og varamaður Kkd. Vestra: Harpa Guðmundsdóttir, Ingi Björn Guðnason, Birna Lárusdóttir, Ingólfur Þorleifsson, Helga Salóme Ingimarsdóttir og Gunnlaugur Gunnlaugsson, varamaður.

Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Vestra var haldinn í Vinnuverinu á Ísafirði síðasta vetrardag, 24. apríl. Kosið var í stjórn og er hún að mestu skipuð fulltrúum sem hafa setið um nokkra hríð í stjórn deildarinnar. Konur eru nú í fyrsta sinn meirihluti stjórnar Kkd. Vestra.

Ingólfur Þorleifsson var endurkjörinn formaður auk þess sem Birna Lárusdóttir, Harpa Guðmundsdóttir og Ingi Björn Guðnason gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Ný inn í stjórn kemur Helga Salóme Ingimarsdóttir, sem áður var varamaður. Þar með eru konur þrjár af fimm aðalmönnum í stjórn og er það í fyrsta sinn í sögu deildarinnar, og forverans KFÍ, sem þannig skipast í stjórn. Gunnlaugur Gunnlaugsson var kjörinn varamaður, og kemur nýr að stjórnarstörfum, en aðrir varamenn eru Birgir Örn Birgisson og Sveinn Rúnar Júlíusson, sem báðir hafa setið sem aðalmenn í stjórn.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf og var Óðinn Gestsson fundarstjóri. Ingólfur Þorleifsson, formaður, og Birna Lárusdóttir, formaður barna- og unglingaráðs, fluttu árlegar skýrslur formanna um starfsemi deildarinnar í vetur. Harpa Guðmundsdóttir, gjaldkeri, fór yfir reikninga deildarinnar og Hjalti Karlsson, formaður aðalstjórnar íþróttafélagsins Vestra flutti ávarp. Hann gerði einnig skil þremur stórum verkefnum sem aðalstjórn hefur unnið að á síðustu misserum. Búið er að vinna viðbragðsáætlun, jafnréttisstefnu og siðareglur fyrir félagið og verður sú vinna kynnt betur á aðalfundi Vestra sem fram fer þriðjudaginn 30. apríl.

Nýkjörinni stjórn Kkd. Vestra er óskað velfarnaðar í störfum sínum fyrir vestfirskan körfuknattleik.

 

Deila