Á morgun, mánudag, verður hið stórskemmtilega Hamraborgarmót haldið á Torfnesi. Mótið fer nú fram í þriðja sinn en það er samstarfsverkefni meistaraflokks Kkd. Vestra og Hamraborgar og ætlað öllum áhugasömum krökkum í 1.-6. bekk.
NánarVestri lagði Þór frá Akureyri í framlengdum leik á Jakanum í gærkvöldi. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 81-81 en Vestri hafði betur í framlengingunni og sigraði 89-85.
NánarÁ morgun, föstudaginn 25. janúar, mætir Vestri liði Þórs frá Akureyri í 1. deild karla hér heima á Jakanum.
NánarNú er Íslandsmótið hálfnað hjá Flaggskipinu og því ekki úr vegi að fara yfir hálfleikstölur.
NánarÍ kvöld og á morgun rúllar körfuboltatímabilið af stað á ný! Á laugardaginn fer fram leikur Vestra gegn Hetti frá Egilsstöðum á Jakanum og hefst leikurinn kl. 15:00. Í kvöld, föstudag, mætast drengjaflokkar liðanna svo kl. 21:00.
NánarFramherjinn Adam Smári Ólafsson er genginn í raðir Vestra á nýjan leik. Hann skipti svo yfir í Selfoss snemma hausts á venslasamningi. Um áramótin flutti pilturinn svo aftur vestur á Ísafjörð og hefur þegar hafið æfingar með sínum gömlu félögum.
NánarHugi Hallgrímsson, leikmaður körfuknattleiksdeildar Vestra, var á sunnudag útnefndur efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2018 við hátíðlega athöfn sem fram fór í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar stendur árlega fyrir valinu á íþróttamanni ársins ásamt þeim efnilegasta. Elmar Atli Garðarson, leikmaður knattspyrnudeildar Vestra, var útnefndur íþróttamaður ársins og Skotíþróttafélag Ísafjarðar fékk hvatningarverðlaun bæjarins við sama tilefni.
NánarÞað verður lítið um afslöppun milli jóla og nýárs hjá sex liðsmönnum yngri flokka Vestra, sem kallaðir hafa verið til æfinga með landsliðsúrtakshópum Körfuknattleikssambands Íslands. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu og eru þær undirbúningur fyrir landsliðsverkefni sumarið 2019.
NánarHin árlega jólakarfa Vestra verður á sínum stað að venju á aðfangadag. Löng hefð er fyrir því að körfuboltakappar mæti á aðfangadagsmorgun á Torfnes og hiti þannig upp fyrir jólahátíðina.
NánarVestri mætti Sindra í Höfn í Hornafirði í gærkvöldi í 1. deild karla. Þrátt fyrir að stór skörð séu hoggin í lið Vestra létu strákarnir slíkt ekki á sig fá og unnu góðan sigur 66-76. Með sigrinum komst Vestri í þriðja sæti deildarinnar sem verður að teljast fínn árangur fyrir jólafrí.
Nánar