Körfubolti | 18.06.2009
Árni Ragnarsson að störfum! (Ljósmynd: www.fjolnir.is)
"Vildi bara nýta tækifærið og hrósa ykkur fyrir æfingabúðir ykkar á Ísafirði. Ég er ekki á staðnum en ég get skynjað metnaðinn fyrir ykkar hönd til að gera allt sem allra best til þess hjálpa krökkunum. Þar sem metnaðurinn fyrir íþróttinni nær yfir eigin hagsmuni veit maður að starfar gott fólk. Ég get skynjað hingað til Reykjavíkur að þið takið stolt þátt í því að gera þessar körfuboltabúðir eins flottar og þið mögulega getið og fyrir það eigið þið endalaust hrós skilið. Óska ykkur hins allra besta og vona að þið haldið þessu starfi áfram með sama stolti og þið gerið þetta í dag og haldið líka áfram að reyna að finna leiðir til að gera enn betur með hverju ári. Þetta lítur út fyrir að vera þvílíkt flott hjá ykkur."
Árni Ragnarsson,
Fyrrverandi leikmaður FSu og nú University of Alabama Huntsville.
KFÍ þakkar góðar kveðjur frá þessum frábæra leikmanni. Þetta er okkur enn frekari hvatning til þess að endurtaka leikinn. Óhætt er að segja það að flest stefnir í einmitt það og munum við fjalla um Körfuboltabúðir KFÍ 2010 síðar.
Nánar
Körfubolti | 13.06.2009
Grillað að loknum vel heppnuðum búðum.
Eftir afhendingu verðlauna og sigurlauna var slegið upp veislu við suðurgafl íþróttahússins. Þar var búið að koma fyrir bekkjum og borðum. Þorsteinn Þráinsson grillaði leikandi létt ofan í alla gesti og aðstandendur. Boðið var upp á kryddleginn steinbít í boði Íslandssögu á Suðureyri.
Nánar
Körfubolti | 13.06.2009
Ríkharður, Snorri, Björgvin og Bergþór
"Öll umgjörð er alveg til fyrirmyndar. Frábærir þjálfarar (og enskukennsla innifalin í verðinu). Ekki síst, þá eru þeir sem standa að ungmennastarfi KFÍ frábærir. Komum örugglega að ári liðnu. Takk fyrir mig."
Ríkharður Jónsson, Borgarnesi
Nánar
Körfubolti | 13.06.2009
Léttleikinn var í fyrirrúmi í búðunum sem endranær!
Borce og Guðjón fundu loks leikmann frá Höfuðborgarsvæðinu sem var tilbúinn til þess að taka stóra stökkið og skrifa undir "leikmannasamning" við KFÍ. Þarna erum við að ræða um sjálfan Hannes S. Jónsson formann KKÍ!
Hannesi leist svo vel á sýnishorn af nýjum búningum og féll auðvitað líka marflatur fyrir veðurblíðunni undanfarna daga, og lét til fallast eftir töluverðar samningaviðræður. Hægt er að upplýsa að hann fær afnot af sumarhúsi þangað til það byrjar að snjóa (reddum því svo bara síðar) og eins mun hann fá 300 kr úttekt úr nammibarnum í Hamraborg á laugardögum. Fyrsta deildin er alltaf að styrkjast!
Nánar
Körfubolti | 13.06.2009
Stefán Diego treður með tilþrifum.
Æfingar héldu áfram í morgun með svipuðu sniði og hingað til. Eftir hádegishlé hófst dagskrá kl. 16:00 og var lokið úrslitum í "einn á einn", vítakeppni, troðslukeppni, 3ja stiga skotum, "fimm á fimm". Þessu öllu var lokið um kl. 19:00 og afhenti Hannes S. Jónsson formaður KKÍ ásamt þjálfurum, öllum viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í búðunum. Einnig voru afhent verðlaun fyrir keppnir og verður reynt að taka það saman í sérstökum pistli síðar.
Nánar
Körfubolti | 13.06.2009
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ kom til Ísafjarðar með alla fjölskylduna. Hann kom til þess að kynna sér æfingabúðirnar og hitta þátttakendur. KFÍ tók hann í stutt spjall og ekki var annað að heyra á honum en að hann væri mjög ánægður.
Nánar
Körfubolti | 12.06.2009
Sara Pálmadóttir. Mynd Halldór Sveinbjörnsson
"Mér finnst þetta flottar búðir. Hefði sjálf viljað taka þátt í þeim. Krakkarnir læra rosa mikið af þessu. Munið að sumarið er tíminn til þess að bæta sig!".
Sara Pálmadóttir, stjórn kkd. Hauka Hafnarfirði
Sara hefur verið að fylgjast með æfingum og kennslu s.l. daga. KFÍ tók hana í "örviðtal" eins og fleiri, enda áhugavert að heyra álit reyndrar körfuknattleikskonu.
Nánar
Körfubolti | 12.06.2009
Eggert Maríuson
"Frábær aðstaða, góður matur og vel hugsað um alla. Þjálfararnir hafa mjög mikla þekkingu á leiknum og einnig reynslu. Tímasetning á búðunum er mjög góð. Eina sem má lagfæra er að auglýsa búðirnar miklu fyrr, þannig að maður komist með fleiri (á næsta ári)".
Nánar
Körfubolti | 12.06.2009
Leikmenn ná upp baráttuandanum fyrir seinni hálfleik!
Auk hefðbundinnar dagskrár æfingabúðanna bar hæst þennan dag heimsókn Mörthu Ernstdóttur og svo auðvitað leik þjálfara/foreldra við leikmenn búðanna um kvöldið. Þetta var enn einn góður dagur í æfingabúðunum og allir lögðust þreyttir en sáttir til svefns það kvöldið.
Nánar
Körfubolti | 12.06.2009
Martha leiðbeinir hópnum
Martha Ernstsdóttir kom í dag í búðirnar og hélt fyrirlestur, auk verklegra æfinga í tækni sem byggir á yoga. Mikilvægt er fyrir afreksfólk í íþróttum að ná bæði slökun og einbeitingu í hugsun, til þess að virkja hugarkraft sinn til fullnustu. Einnig lagði Martha áherslu á mikilvægi teygjuæfinga fyrir íþróttamenn, sem oft vill gleymast. Krakkarnir og þjálfarar tóku virkan þátt, og fullvíst að þessi kennsla mun reynast mörgum dýrmæt síðar á ferlinum.
Ekki má vanmeta mátt andans, eða eins og hin víðfrægi Yogi Berra (hafnarboltaleikmaður í BNA) sagði: "Baseball is 90% mental and the other half is physical!". Nokkuð til í þessu þótt líklega hafi honum orðið fótaskortur í samlagningunni.
Nánar