Körfubolti | 23.10.2009
Minnibolti yngri KFÍ 2009
Fagmennska var í afgreiðslu á pylsum!
Strákarni æfðu baráttuhrópið víðfræga: 1 - 2 - 3 - KFÍ!
Strákarnir úr minnibolta yngri hittust heima hjá Kjartani í kvöld. Þeir eru að undirbúa keppnisferð um næstu helgi, en þá ætla þeir sér að gera góða hluti á Hópbílamótinu hjá Fjölnismönnum í Grafarvogi. Þetta ¨verður í fyrsta sinn sem þeir taka þátt í skipulagðri keppni og því fannst öllum tilvalið að berja saman keppnisandann, með því að hittast utan vallar í þetta sinn.
Nánar
Körfubolti | 20.10.2009
Velkomin um borð leikurinn heldur áfram í vetur í boði FÍ.
Matt er klár í slaginn
Haukar frá Hafnarfirði koma í heimsókn sunnudaginn 25 október. Þeir hafa líkt og KFÍ unnið báða leiki sína og má leiða líkum að því að bæði lið komi grimm til leiks og gefi allt í leikinn. Eru allir hvattir til að koma og styðja við bakið á strákunum okkar. Leikurinn hefst kl 19.15.
Áfram KFÍ
Nánar
Körfubolti | 19.10.2009
Nú fyrir stundu var dregið í Subway bikarnum. Enn förum við á suðurlandið og verður leikurinn líklegast á laugadeginum 7 nóvember. Hekla er í 2 deild og leika í riðli með Laugdælum, Sindra, Árborg og ÍBV. Heimavöllur þeirra er á Hellu og hlakkar okkur til að fara þangað í heimsókn.
Nánar
Körfubolti | 19.10.2009
Það var nóg að gera hjá KFÍ um s.l. helgi. Meistaraflokkurinn hjá okkur
hélt til Hrunamann að Flúðum og þurftu að bregða á það ráða að keyra
þar sem ekki var veður til flugs þegar leggja átti í hann. Nú leikurinn
geng Heunamönnum var mjög vel spilaður og unn þeir öruggan 35 stiga
sigur þar og tóku sig til og keyrðu heim beint eftir leik til þess að
geta hjálpað við umsjón í fjölliðlamóti 10 flokks stúkna.
Nánar
Körfubolti | 18.10.2009
Drengjaflokkur KFÍ
Fyrr í dag sigruðu piltarnir okkar í drengjaflokki FSU 52-57 í miklum baráttuleik. Íþróttaakademían
á Ísafirði hafði sem sagt betur gegn akademíunni á Selfossi. Leikurinn
var jafn og spennandi allan tímann. Eftir fyrsta fjórðung var FSU með
eins stigs forskot, í hálfleik vorum við með 4 stig forskot, eftir þrjá
leikhluta var forysta okkar 1 stig en svo 5 stig í restina. Leikurinn
einkenndist af hörðum leik, varnir voru stíft spilaðar og töluvert dæmt
af villum. Við missum Leó og Nonna út af með 5 villur, Gumma einnig
vísað af velli, liðið komið 2 stigum undir í stöðunni 52-50 en sýnir
mikinn styrk og skorar síðustu 7 stig leiksins.
Nánar
Körfubolti | 18.10.2009
Sunna fer sterkt upp á körfuna og Vera hefur komið sér í góða stöðu.
Eftir öruggan sigur í fyrsta leik stóð aldeilis til að fylga því eftir og vinna þennan leik líka. Ekki gekk það alveg upp byrjuðu Valsstelpur á að komast í 6-0 og síðan 14-5 eftir fyrsta fjórðung. Við náðum aldrei að ógna Valsstelpunum í leiknum og lendum mest 23 stigum undir 25-48 í lok þriðja fjórðungs. Klárum leikinn með sæmd og töpum með 15 stigum 53-38. Það sem helst skildi liðin að voru fráköstin. Valsstúlkurnar eru mjög hávaxnar og gekk okkur illa að eiga við þær innan teigs. Vorum ekki nógu duglegar að stíga þær út. Baráttan var þó til fyrirmyndar og gáfust KFÍ stelpur aldrei upp en mættu hér ofjörlum sínum.
Nánar
Körfubolti | 18.10.2009
Barátta í teignum.
Stúlkurnar tóku á móti Herði frá Patreksfirði í fyrsta leik. Stúlkurnar
okkar voru nokkuð seinar í gang en eftir að hafa jafnað 6-6 eftir 5
mínútur náðu þær áttum og áttu fínan leik. Mestur varð munurinn 32 stig
en leikur endaði með 27 stiga sigri 48-21. Allar áttu stúlkurnar fínan
leik, spiluðu góða vörn, spiluðu mjög vel saman og áttu Harðarstúlkur
fá svör. Stigin hér í nánar:
Sunna 17, 2-2 í vítum, 1 þriggja
Eva 12, 4-2
Vera 12, 4-0
Heiðdís 4, 2-0
Guðlaug 3
Nánar
Körfubolti | 18.10.2009
10. flokkur KFÍ stúlkna - ánægðar með nýju búningana.
Fjölliðamót 10. flokks stúlkna B-riðill fór fram hér á Ísafirði í dag.
Breiðablik komst ekki eins og áður hefur komið fram á síðunni. Úrslitin
í dag voru eftirfarandi
1. KFÍ-Hörður 48-21
2. Valur - Hörður 40 - 24
3. KFÍ - Valur 38-53
Nánar
Körfubolti | 18.10.2009
Drengjaflokkur KFÍ lagði Stjörnuna fyrr í dag með 77 stigum gegn 46. Öruggur sigur eftir smá ströggl í byrjun, nánar síðar.
Nánar
Körfubolti | 17.10.2009
Óðinn Gestsson ásamt Borce Ilievski og Craig Schoen afhenda Elfari Einarssyni þakklætisvott frá KFÍ.
Elfar Einarsson frá Icelandic USA leit inn á æfingu KFÍ í vikunni, en
þeir hafa verið traustir stuðningsaðilar félagsins í gegnum árin. Elfar
þekkir vel til á Vestfjörðum, enda á hann ættir sínar að rekja til
Súgandafjarðar.
Nánar