Körfubolti | 16.10.2009
Meistaraflokkurinn gerði góða ferð til vina okkar að Flúðum. Við gleymum ekki hvernig að þeir tóku okkur í bakaríið í fyrra í fyrsta leik og nú ætluðu drengirnir að hefna sín. Sú varð raunin og unnum við öruggan sigur, lokatölur 118-83.
Samkvæmt áræðanlegum heimildum var þetta sigur liðsheildarinnar og allir lögðu sitt að mörkum til þess að færa þessi tvö stig í hús.
Nánar
Körfubolti | 16.10.2009
10 flokkur stúlkna mun á morgun hefja keppni á Íslandsmótinu og er fjölliðamót þeirra hér heima að þessu sinni.
Þær munu etja kappi við lið Vals og Harðar frá Patreksfirði, en lið
Breiðabliks helltist úr lestinni vegna skæðrar flensu sem gengur um
allt land þessa dagana.
Fyrsti leikurinn er kl 15.45 og er það KFÍ-Valur. Reiknað er með að
klára mótið á morgun og eru allir hvattir til að láta sjá sig á Jakanum
og hvetja þær til dáða.
Áfram KFÍ.
Nánar
Körfubolti | 16.10.2009
Mynd - Helgi Sigmundsson.
Vegna óhagstæðs veðurs fyrir flug tóku
strákarnir sig til og keyrðu suður. Þetta var gert til þess að þurfa
ekki að fresta leiknum gegn Hrunamönnum. Það er alltaf vont að þurfa að
fresta leikjum og eru bæði meistaraflokkur og drengjaflokkur að spila
fyrir sunnan á helginni og það hefði verið erfitt að koma þessu saman
ef ekki væri leikur í kvöld.
Meistaraflokkurinn er sem fyrr segir að spila gegn Hrunamönnum og hefst leikurinn á Flúðum kl.19.15.
Drengirnir eiga tvo leiki um helgina. Sá fyrri er gegn Stjörnunni í Garðabæ og hefst hann kl.16.00 á laugardag.
Síðari leikurinn er gegn Fsu og er á Selfossi kl. 12.30 á laugardag.
Við skorum á brottflutta Vestfirðinga að láta sjá sig og hvetja drengina.
Áfram KFÍ
Nánar
Körfubolti | 15.10.2009
Mynd - Halldór Sveinbjörnsson
Meistaraflokkur KFÍ og drengjaflokkur halda suður á morgun. Meistaraflokkurinn keppir við vini okkar frá Flúðum og er sá leikur kl. 19.15. Heimasíðan mun setja inn fréttir um leið og þær berast í hús.
Áfram KFÍ.
Nánar
Körfubolti | 11.10.2009
KFÍ varð að hafa fyrir stigunum tveim gegn mjög sprækum strákum úr Þór frá Akureyri. Gestirnir voru með forystu í leiknum alveg fram yfir miðjan þriðja leikhluta og í stöðunni 44-54 settu þeir Pance og Craig í fluggírinn og settu 5 þriggja stiga körfur og náðu að minnka muninn í 1 stig 60-61 og allur fjórði leikhlutinn eftir.
Þetta nægði til þess að starta vélinni og við unnum fjórða leikhluta 21-11 og leikinn því 82-72 og fögnuðu leikmenn og áhorfendur okkar mikið í leikslok.
Pance fór í gang og setti niður 6 þrista í röð og kveikti heldur betur í strákunum sem fylgdu með í kjölfarið og leikurinn snerist algjörlega við. Pance, Craig og Matt voru að öðrum ólöstuðum menn leiksins, en Danni og Florijan stigu upp þegar á þurfti að halda. En þessi sigur var samt sem áður sigur liðsheildarinnar og sýndu strákarnir góðan karakter að gefast ekki upp.
Nánar
Körfubolti | 09.10.2009
Fyrsti leikur meistaraflokks KFÍ er á sunnudagskvöld klukkan 19.15. Það eru Þórsarar frá Akureyri með Baldur okkar Inga Jónasson í fararbroddi sem mæta í Jakann. Eftir langt og strangt undirbúningstímabil eru strákarnir klárir og óska eftir stuðningi þínum. Mætum öll og hvetjum þá til dáða.
Nánar
Körfubolti | 07.10.2009
Þjálfarar 1.deildar tóku sig saman og spáðu um hvar liðin skipa sér í sæti. Haukar fara beint upp í vor ssamkvæmt spáni og KFÍ fær annað sætið og þá heimaleikjarétt í úrslitakeppni. Það ber þó að segja strax að um spá er að ræða og við pennarnir á kfi.is erum ekki alveg sammála. öllu nema að Haukar eru sigurstranglegastir og að Ármann/Þróttur verða ekki neðstir með Tómas Hermannsson vin okkar sem skipstjóra í brúnni.
Nánar
Körfubolti | 05.10.2009
Leikmenn meistaraflokks mættu í árlegt matarboð hjá formanni KFÍ á laugardagskvöld. þó að lokaundirbúningur fyrir komandi tímabil sé á fullu þá gefa menn sér nú tíma til að borða hollan mat líka. Þessir drengir eru vonandi allir að stækka ennþá og því þurfa þeir að borða vel.
Nánar
Körfubolti | 04.10.2009
Drengjaflokkur KFÍ lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu á laugardag. Gestir í þetta sinn voru drengirnir úr Kópavogi, Breiðablik sem fóru með sigur af hólmi 72-97. Breiðablik er með hörkulið og var oft gaman að sjá tilþrif þeirra, en það var einnig gaman á köflum að sjá til okkar drengja og eru þeir til alls líklegir í vetur.
Nánar
Körfubolti | 29.09.2009
Jæja þá er komið að því. KFÍ er með mjög öflugt starf í gangi og byrjar ballið á laugardag þegar drengjaflokkur tekur á móti liði Breiðabliks á Jakanum kl. 14.00 og eru allir hvattir til að koma og sjá þessa efnilegu drengi spila.
Nánar