Í dag fór fram fyrsti heimaleikur Vestra í blaki á þessu tímabili. 2. flokkur stelpna tók á móti Þrótti Reykjavík og fór leikurinn fram á Þingeyri. Þróttur R hafði sigur í miklum baráttuleik 3-1.
NánarÞau Kjartan Óli Kristinsson og Þorgerður Karlsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka blakdeildar Vestra á tímabilinu. Hafsteinn Már Sigurðsson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir voru valin efnilegust. Það var Tihomir Paunovski þjálfari sem valdi og tilkynnti niðurstöðurnar á slútti sem blakarar héldu á strandblakvellinum í Tungudal síðasta fimmtudagskvöld.
Nánar4. flokkur Vestra varð um helgina Íslandsmeistari í blaki eftir magnaða úrslitaleiki við Þrótt Nes. Vestri á einnig Íslandsmeistara í 5. flokki B deildar.
NánarÍslandsmótið í blaki hjá 4.-6. flokki vorið 2017 var haldið á Ísafirði um helgina. Á mótinu voru tæplega 170 keppendur á aldrinum 7-14 ára ásamt þjálfurum og fararstjórum. 28 lið frá níu félögum kepptu í fimm deildum og alls voru leiknir 82 leikir.
NánarNúna um helgina, 5.-7. maí heldur Vestri Íslandsmót í blaki fyrir 4.-6. flokk í íþróttahúsinu Torfnesi. Á mótið koma lið víðsvegar að af landinu, og verða þátttakendur um 170 talsins fyrir utan fararstjóra og þjálfara. Leiknir verða rúmlega 80 blakleikir.
NánarFlestir blakarar Vestra voru í blakfríi um páskana, stunduðu skíði og rokktónleika eins og Ísfirðingum sæmir. En þrjú blaklandslið voru í verkefnum um páskana. Vestri átti fulltrúa í einu þeirra, Hafsteinn Már Sigurðsson spilaði með U17 drengjalandsliðinu á Evrópumóti í Búlgaríu. Íslensku strákarnir töpuðu sínum leikjum á móti geisisterkum liðum, en áttu góða kafla og fór jafnt og þétt fram.
Hér er frétt á síðu Blaksambandsins um verkefni landsliðanna um páskana
NánarÞað er óhætt að segja að karlalið Vestra hafi komið á óvart með frábærum leik á móti Aftureldingu. Þrátt fyrir 3-0 tap þá hefðu fyrstu tvær hrinurnar getað endað hvoru megin sem er. Það er eftirtektarvert afrek hjá litlu félagi frá Ísafirði að koma í fyrsta sinn á stóra sviðið í höllinni og bara láta eins og þeir hafi aldrei gert annað. Vestri spiluðu djarfan og góðan leik, áttu margar hávarnir, fínar sóknir og varnir.
Hér fyrir neðan er linkur á leikinn sem var sýndur á sport.tv og viðtal við hinn flotta þjálfara okkar Tihomir Paunovski. Getið þið ímyndað ykkur betri talsmann Vestfirðinga :-)
Nánar
Undanúrslitin í Kjörísbikarnum verða á morgun, föstudaginn 7. apríl. Þá verða spilaðir fjórir blakleikir í Laugardalshöllinni og er leikur karlaliðs Vestra á móti Aftureldingu kl. 20. Við hvetjum alla sem tök hafa á til að mæta á leikinn og hvetja okkar menn. Þeir sem ekki komast á staðinn geta horft á leikinn í beinni á sporttv.is.
NánarKarlalið Vestra hefur lokið keppni þetta tímabil í 1. deild karla í blaki. Liðið sigraði deildina og fékk deildarmeistarabikarinn afhentan í Hveragerði um síðustu helgi.
NánarAðalfundur blakdeildar Vestra var haldinn 23. mars. Þrír nýir komu inn í stjórn deildarinnar: Svava Rán Valgeirsdóttir, Petra Dröfn Karvel og Signý Þöll Kristinsdóttir. Þær eru boðnar velkomnar til starfa.
Nánar