Fréttir - Sund

ÍRB mót heimferð

Sund | 15.05.2011 Sæl
Klukkan 21:30 komu sundgarparnir okkar til Hólmavíkur, áætluð heimkoma er ca. kl. 1:00.
kv. Guðbjörg
Nánar

Heimferð

Sund | 15.05.2011 Sæl
Nú voru krakkarnir að fara af stað frá Borganesi kl. 20.
kv. Guðbjörg Nánar

Írbmót

Sund | 15.05.2011 Sæl
Þá eru Vestrapúkarnir lagðir af stað heim, þau ætla að borða í Borganesi og bruna svo beina leið heim.
Set inn fréttir um hvernig miðar.
kv Guðbjörg Nánar

Írbmót

Sund | 14.05.2011 Sæl Öll
Það hefur gengið vel hjá krökkunum okkar í dag, Elena Dís landaði tveimur silfrum og Mikolaj einu gulli.
Nú er yfirstandandi júrópartý hjá þeim.
Við óskum þeim góðs gengis á morgun.
kv. Stjórn Vestra Nánar

ÍRB mót

Sund | 13.05.2011 Sæl öll
Þá eru Vestrapúkarnir okkar komnir til Keflavíkur, ferðin gekk vel og voru þau komin vel fyrir kvöldmat.
Á morgun byrjar fjörið og hefst keppni kl.8:30, hægt er að sjá bein úrslit á keflavik.is/sund.
Við óskum þeim góðs gengis á morgun.
kv. Stjórn Vestra Nánar

AMÍ 2011

Sund | 13.05.2011
AMÍ 2011 verður haldið á Akureyri dagana 23.-26. júní.

Keppt verður í Sundlaug Akureyrar við Þingvallastræti.

Boðið verður upp á gistingu í Brekkuskóla á Akureyri. Skólinn er staðsettur við hlið sundlaugarinnar í um 20 metra fjarlægð. Eins og venja er með sundmót þarf fólk að hafa með sér dýnur og annan viðlegubúnað. Matur verður einnig framreiddur í Brekkuskóla. Staðsetning lokahófs kemur síðar.

Verð:
Við tökum þátt í að létta undir í kreppunni þannig að þrátt fyrir verðhækkanir á aðföngum þá höldum við nánast óbreyttu verði á milli ára. Pakki sem inniheldur gistingu og mat frá og með miðvikudagskvöldi 24. júní, til og með mánudagsmorgni 29. júní, lokahóf og hinn sívinsæla AMÍ bol kostar krónur 21.000 á mann. Til samanburðar var pakkinn í fyrra á 17.500, m.v. fæði frá hádegi á fimmtudegi. Kjósi einhvern þann pakka er það 18.000 kr.

Greiðist inn á reikning: 1145-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir miðvikudaginn 22. júní.

Skráning í mat og gistingu
Skráningar vegna gistingar skulu berast Óðni, í tölvupósti á netfangið
odinn@odinn.is fyrir 15. júní. Við getum ekki ábyrgst að verða við skráningum sem berast síðar, né heldur endurgreiðslu á skráningum eftir þennan tíma.

Vinsamlegast athugið að matar- og gistipassar verða afhentir frá 16:00 - 19:00 í Brekkuskóla miðvikudaginn 22. júní og þá aðeins gegn framvísun á staðfestingu á greiðslu (til dæmis útprentun úr heimabanka).

Spurningum varðandi AMÍ-pakkann skal beina á odinn@odinn.is.

Skráning sundmanna
Skráning í greinar er hjá Sundsambandi Íslands;
sundsamband@sundsamband.is. Skráningarfrestur er til 13. júní. Þeir sem ekki eru með hytek kerfið skulu skila inn skráningum ásamt staðfestingum á tímum eigi síðar en 10. Júní. Sjá nánar á heimasíðu SSÍ

Það verður hægt að fá ýmsar upplýsingar um mótið á heimasíðu Óðins þegar nær dregur mótinu og einnig er fólki bent á að skoða heimasíðu Akureyrar, en þar er meðal annars hægt að sjá hvað verður í boði til afþreyingar þessa daga.

Munið það er alltaf gott veður í Eyjafirði. Mætum með bros í hjarta svo við getum átt saman ánægjulega daga á Akureyri.


Nánar

ÍRB mót

Sund | 11.05.2011 Sæl Öll

Þá eru línur farnar að skýrast varðandi ÍRB-mótið.

Farið verður með rútu og munum leggja af stað kl 10 á föstudag, mæting í síðasta lagi kl 9:45 við samkaups-planið.
Það verður stoppað í Búðardal á leiðinni suður og borðað einnig bætast þar 10. bekkingar í hópinn, gott er að þau hafi eitthvað nesti með sér líka.
Enginn frá Vestra er að keppa á föstudeginum þannig að við stefnum bara á að ná í kvöldmat í Keflavík kl 1900.

Lagt verður af stað heim strax að móti loknu á sunnudaginn og áætluð heimkoma verður seint á sunnudagskvöld, frekari fréttir af heimkomu verða settar á síðuna.
Á heimleið er áætlað að borða í Borganesi.

Krakkarnir þurfa að hafa með sér dýnur og svefnpoka/sæng og verður gist í skólastofum nú eins og áður.
3-4 handklæði
Sundföt, sundgleraugu, sundhettu og vatnsbrúsa á bakkann.
Bakkaföt, stuttbuxur, bol og innskó (þetta er innilaug og getur orðið ansi heitt á bakkanum)
Auka föt.
Tannbursta og aðrar nauðsynlegar hreinlætisvörur

Öll rafmagnastæki eins og i-pod og farsíma hafa krakkarnir með sér á eigin ábyrgð.

Ekki er ætlast til þess að krakkarnir hafi með sér vasapening og minnum við á að allar ferðir á vegum Vestra er gos- og nammilausar.
Hins vegar reynum við að ljúka góðri ferð á því að fá okkur ís einhversstaðar á leiðinni eins og svo oft áður og er það í boði Vestra.

Fararstjórar í ferðinni verða:
Ragna Ágústsdóttir simi:8655710 begin_of_the_skype_highlighting            8655710      end_of_the_skype_highlighting
begin_of_the_skype_highlighting
end_of_the_skype_highlighti
Daniel Jakobsson sími: 8206827 begin_of_the_skype_highlighting            8206827      end_of_the_skype_highlighting
Til aðstoðar á bakkanum yfir daginn er Gunna Baldurs. sími: 8621845 begin_of_the_skype_highlighting            8621845      end_of_the_skype_highlighting
Bílstjóri er Ólafur Baldursson
Þjálfarar í ferðinni eru Martin og Svala.

Kostnað ferðarinnar greiðist inn á

reikningsnúmer:
0556-26-282
kennitala:
430392-2399

og senda kvittun á mimir@internet.is

Ef einhverjar spurningar vakna hjá foreldrum um ferðina þá er alltaf hægt að hafa samband og fá upplýsingar hjá Guðbjörgu í síma   8457246  


Ég vil einnig benda á síðu mótsins hjá ÍRB-ingum en hún er:
http://www.keflavik.is/Sund/Landsbmot2011
Góða ferð og skemmtun.
Kv. Stjórn Vestra
Nánar

ÍRB mót

Sund | 10.05.2011 Sæl öll
Fundur fyrir foreldra þeirra barna sem fara á Írbmótið verður á sundhallarloftinu á morgun 11. mai kl. 18:00.
kv. Stjórn Vestra Nánar

Fundur

Sund | 05.05.2011 Sæl

Foreldrafundur fyrir utanlandsferðina verður í kvöld fim. kl.20 upp á Torfnesi í íþróttahúsinu.

kv. stjórn Vestra Nánar

Vestrabolir

Sund | 04.05.2011 Minni á að hægt er að panta sér Vestrabol á morgun milli kl.17 og 19 á sundhallarlloftinu.
kv.
Stjórn Vestra Nánar