Kæru stuðningsmenn og velunnarar Körfuknattleiksdeildar Vestra. Eins og flestum er kunnugt kemur hið fordæmalausa ástand, sem öll heimsbyggðin upplifir nú, afar illa niður á íþróttafélögum. Við vitum að karfan á Ísafirði á stóran hóp af fyrrum leikmönnum, stjórnarfólki og stuðningsmönnum um allt land, og jafnvel víðar. Því langar okkur að freista þess að leita eftir aðstoð ykkar við að rétta fjárhaginn þannig við að loka megi rekstri tímabilsins með viðunandi hætti og koma þannig sterkari til leiks í haust.
NánarStjórn Körfuboltabúða Vestra hefur ákveðið að fresta búðunum um tvo mánuði í ljósi aðstæðna vegna Covid-19. Búðirnar munu fara fram dagana 6.-11. ágúst með sama sniði og síðustu tólf ár.
NánarStjórn Körfuknattleiksdeildar Vestra og Pétur Már Sigurðsson, þjálfari meistaraflokks karla, hafa ákveðið að Pétur muni stýra liðinu áfram á næsta leiktímabili. Þrátt fyrir óvissutíma framundan telur stjórn mikilvægt að bíða ekki með undirbúning næsta tímabils enda mikilvægt að tryggja sem mestan stöðugleika í starfsemi deildarinnar.
NánarRíflega þrjátíu iðkendur í yngstu aldurshópum Vestra eru á leið á hið árlega Nettómót á Suðurnesjunum, sem er langstærsti körfuboltaviðburður landsins. Í ár fagnar mótið 30 ára afmæli og verður enn meira um dýrðir af því tilefni. Áratugalöng hefð er fyrir þátttöku Vestra á mótinu.
NánarVestri lagði Skallagrím úr Borgarnesi að velli í kvöld í hröðum og skemmtilegum leik á Ísafirði 99-80 í gærkvöldi. Þetta var frestaður leikur sem átti upphaflega að fara fram þann 20. desember síðastliðinn.
NánarSkallagrímur kemur í heimsókn á Jakann í kvöld kl. 19:15. Þetta er annar leikur liðanna á skömmum tíma því liðin mættust í Borgarnesi fyrir tæpum tveimur vikum. Leikur kvöldsins átti upphaflega að fara fram 20. desember síðastliðinn en var frestað vegna veðurs.
NánarVestri á þrjá leikmenn í U16 og U18 landsliðshópum Íslands í körfuknattleik, sem tilkynnt var um nú í morgun. Gréta Proppé Hjaltadóttir var valin í U16 landslið stúlkna og bræðurnir Hilmir og Hugi Hallgrímssynir í U18 landslið drengja.
NánarVestri tekur á móti Selfossi í 1. deild karla mánudaginn 17. febrúar. Mikilvægur leikur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Selfyssingar sitja í sjötta sæti deildarinnar fjórum stigum á eftir Vestra sem er í fimmta sæti. Taflan gefur þó ekki rétta mynd af stöðunni því Vestri til góða frestaða leiki frá því fyrr í vetur.
NánarÁ morgun, mánudag, fer fram hið árlega Hamraborgarmót yngri flokka Körfuknattleiksdeildar Vestra en það er innanfélagsboðsmót meistaraflokks karla fyrir krakka í 1.-6. bekk. Keppt er á Torfnesi. Yngstu tveir árgangarnir keppa milli 17-18 en eldri hefja leik um kl. 18 og spila fram undir 19:30. Þátttakendur fá rjúkandi heitar pizzur í boði Hamraborgar að keppni lokinni. Allir kátir krakkar eru í 1.-6. bekk eru hjartanlega velkomnir, hvort sem þeir æfa körfubolta eða ekki.
NánarFramundan er risastór helgi hjá yngri flokkum Körfuknattleiksdeildar Vestra en fimm lið keppa á Íslandsmótum um helgina, bæði heima og heiman. Samtals leika liðin 15 leiki og þar af fara fimm fram hér heima. Liðin eru stúlknaflokkur, drengjaflokkur, 8. flokkur stúlkna og minnibolti 11 ára - bæði stúlkur og drengir. Stuðningsfólk Vestra er eindregið hvatt til að kíkja á leiki helgarinnar og styðja þannig við krakkana okkar.
Nánar