Fréttir - Knattspyrna

Áfram Ísland !

Knattspyrna | 02.06.2022

Framundan tveir leikir hjá A landsliði karla á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni – gegn Albaníu 6. júní og gegn Ísrael 13. júní.  Eins og við öll vitum þá munar um öfluga hvatningu stuðningsmanna á leikjum sem þessum.  KSÍ leitar því til ykkar með það að markmiði að ykkar iðkendur séu hvattir til að koma á landsleikina til að horfa á og styðja þetta unga og efnilega landslið okkar í þessum tveimur leikjum.

50% afsláttur er af miðaverði til þeirra sem eru yngri en 16 ára, einnig ef að stærri hópar eru að skella sér saman t.d. lið með þjálfara/fararstjóra þá er sjálfsagt að hafa samband við skrifstofa@ksi.is með að fá aðstoð við miðakaup þannig hópurinn geti setið saman og eins getum við þá boðið einstaka tilboð til stærri hópa. Aðgangur er ókeypis fyrir 1 fullorðinn fylgdarmann með hverjum 10 iðkendum.

 

Með von um að sjá sem flesta á Laugardalsvelli næstu tvö mánudagskvöld.  – Áfram Ísland!

 

Nánar

Fyrsti heimaleikur sumarsins í dag 24.maí

Knattspyrna | 24.05.2022

Vestri mun spila sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu, í dag kl. 18:00 en þá tekur Vestri á móti liði Aftureldingar í Mosfellsbæ á Olisvellinum í 32 liða úrslitum i Mjólkurbikars KSÍ. 

Liðið Vestra leikur í Lengjudeildinni í Íslandsmeistaramótinu og hefur þurft, vegna aðstöðuleys, að leika þrjá fyrstu leiki tímabilsins á útivelli. 

Við hvetjum auðvitað alla til að mæta á völlinn í dag og hvetja okkar menn áfram. 

Áfram Vestri !

Nánar

Knattspyrnudeild Vestra bauð til heimsóknar

Knattspyrna | 05.05.2022
Ganga um Olísvöllinn
Ganga um Olísvöllinn
1 af 6

Knattspyrnudeild Vestra fékk í dag góða heimsókn á svæðið við Torfnes. Í hópnum voru aðilar frá öllum framboðum í komandi sveitastjórnarkosningum í Ísafjarðarbæ, aðilar úr knattspyrnuhreyfingunni, aðalstjórn Vestra og Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.

Tilgangur heimsóknarboðsins var að fá allt þetta öfluga fólk í heimsókn á svæðið og ganga með okkur um knattspyrnuvellina og æfingasvæðið og fara yfir sögu og stöðu svæðisins.

Fyrir hönd knattspyrnudeildarinnar þökkum við kærlega fyrir málefnalegt og gott spjall og virkilega góða mætingu. Við þökkum Vöndu einnig kærlega fyrir hennar góðu heimsókn og innlegg til málefnisins.

 

Nánar

6.flokkur kvenna tók þátt í Goðamótinu á Akureyri

Knattspyrna | 04.04.2022
1 af 4

Stúlkurnar í 6.flokki kvenna gerðu sér ferð á Goðamótið á Akureyri liðna helgi. Þær stóðu sig hrikalega vel á mótinu og er ljóst að framtíðin er björt í kvennaknattspyrnu á Vestfjörðum.

Við sendum eitt lið til leiks að þessu sinni og lék það í keppni C liða. Liðið endaði mótið í 10. sæti.

Frábær árangur hjá stelpunum sem fengu nú að reima á sig takkaskóna í fyrsta skipti í langan tíma eftir vetraræfingar inni á parketinu.

Nánar

Knattspyrnudeild auglýsir eftir þjálfurum

Knattspyrna | 24.03.2022

Knattspyrnudeild Vestra leitar eftir öflugum þjálfurum sem búsettir eru á norðanverðum Vestfjörðum í lið með okkur hjá yngri flokkum félagsins.
Reynsla, þjálfara –eða íþróttafræðimenntun og áhugi á þjálfun barna og unglinga í knattspyrnu er æskileg.

Við horfum fram á spennandi tíma hjá knattspyrnudeildinni og vonumst til að fá til liðs við okkur frábæra þjálfara. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.

Umsóknir ásamt ferilskrám óskast sentar á Margeir Ingólfsson framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar á margeir@vestri.is. Nánari upplýsingar veitir Margeir í síma 6950143.

Nánar

6.flokkur karla tók þátt í Goðamótinu á Akureyri

Knattspyrna | 23.03.2022
1 af 4

Drengirnir í 6.flokki karla gerðu sér ferð á Goðamótið á Akureyri liðna helgi. Þeir stóðu sig með mikilli prýði og voru sjálfum sér og Vestra til sóma.

Við sendum tvö lið til leiks að þessu sinni, sem léku í keppnum C og D liða. Vestri 1 lenti í 3. sæti í keppni C liða og Vestri 2 lenti í 20. sæti í keppni D liða.

Frábær árangur hjá strákunum sem fengu nú að reima á sig takkaskóna í fyrsta skipti í langan tíma eftir vetraræfingar inni á parketinu.

Nánar

Jóhann Króknes Torfason sæmdur gullmerki KSÍ

Knattspyrna | 22.03.2022

Síðast liðinn föstudag var hópur öflugs fólks sæmt ýmist gull eða silfurmerkjum KSÍ. 

Okkar maður Jói Torfa var einn þeirra sem var sæmdur gullmerki KSÍ. Jói hefur verið viðloðandi knattspyrnuna frá unga aldri og hefur lagt sitt að mörkum til íþróttamála hér á svæðinu. Hann var formaður ÍBÍ og BÍ88. Hann hefur setið í ýmsum nefndum er varða uppbyggingu íþróttamannvirkja í Ísafjarðarbæ og gengdi hann formennsku félags við byggingu áhorfendastúku við Olísvöllinn á Torfnesi. 

Jói hefur verið gríðarlega öflugur í þessu starfi og eigum við honum, og ekki síður henni Helgu, mikið að þakka. 

Jói er vel að gullmerkinu kominn og viljum við óska honum til hamingju og í leiðinni þakka honum innilega fyrir sitt framlag til íþróttamála á svæðinu í gegnum árin. 

Nánar

Aðalfundur knattspyrnudeildar Vestra

Knattspyrna | 09.03.2022

Knattspyrnudeild Vestra boðar til aðalfundar þann 16. mars klukkan 20:00.

Nánar

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er nýr þjálfari Vestra

Knattspyrna | 06.03.2022
Gunnar í leik með Norrköping
Gunnar í leik með Norrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur verið ráðinn næsti þjàlfari Vestra.

Nánar

Guðmundur Páll valinn í æfingahóp U17 karla

Knattspyrna | 28.02.2022

Guðmundur Páll Einarsson hefur verið boðaður á æfingar hjá U17 ára landsliði karla dagana 7. – 9. mars. Æfingarnar fara fram í Skessunni.

Við óskum Guðmundi til hamingju með valið!

Nánar