Fréttir - Blak

Góðir sigrar Vestra um helgina

Blak | 19.02.2017

Karlalið Vestra í blaki sigraði Aftureldingu B tvívegis um helgina og fóru báðir leikirnir 3-0.

Nánar

Vestri tekur á móti Aftureldingu B í 1. deild karla í blaki

Blak | 16.02.2017

Strákarnir í Vestra fá Aftureldingu B til sín um helgina.  Leikirnir verða á föstudagskvöld kl. 20:45 (eða strax á eftir körfuboltaleik) og laugardag kl. 10:30. Vestri eru efstir í 1. deild karla og ætla að gera allt sem þeir geta til að halda þeirri stöðu. Vonumst til að sjá sem flesta á leikjunum - kaffi og með'í til sölu hjá yngri flokkum blakdeildarinnar.

Um síðustu helgi sigraði karlalið Vestra lið KA-ö á Akureyri í 3. umferð Kjörísbikarsins og eru þar með komnir í átta liða úrslit. Kvennaliðið tapaði einum deildarleik en vann annan í Reykjavík sömu helgi.

Fréttavefurinn bb.is fjallaði um ferðalagið og leikina:

http://www.bb.is/2017/02/helgi-lifi-ithrottaidkenda-vestfjordum/

 

 

Nánar

Sigur hjá Vestra í baráttuleik á móti Fylki í 1. deild kvk í blaki

Blak | 05.02.2017

Vestrakonur unnu Fylki 3-2 í miklum baráttuleik í Torfnesi á laugardag. 

Nánar

Vestri tekur á móti Fylki í 1. deild kvenna í blaki

Blak | 03.02.2017

Laugardaginn 4. febrúar kl. 15 mun kvennalið Vestra taka á móti Fylki í Torfnesi. 

Nánar

Vestri áfram í næstu umferð Kjörísbikarsins.

Blak | 23.01.2017
Vestri og Hrunamenn eftir leik liðanna á Flúðum.
Vestri og Hrunamenn eftir leik liðanna á Flúðum.

Karlalið Vestra í blaki tekur nú í fyrsta sinn þátt í bikarkeppninni. Þeir áttu leik við Hrunamenn á Flúðum í gær, sunnudaginn 22. janúar. Vestri sigraði nokkuð örugglega 3-0 í leiknum og eru því komnir áfram í næstu umferð. 

Á heimasíðu Blaksambandsins kemur eftirfarandi fram:  Liðin sem eftir eru í Kjörísbikar karla eru 9 talsins:  KA, HK, Stjarnan, Afturelding, Þróttur Nes, Þróttur R/Fylkir, Vestri, Hamar og KA-Ö. Í næstu umferð þarf að koma fjölda liða niður í 8 lið en öll úrvalsdeildarliðin munu sitja yfir í þeirri umferð. Þrjú síðustu liðin í upptalningunni fara í pott og dregið verður í 1 leik. 

http://www.bli.is/is/frettir/utisigrar-i-kjorisbikarnum-um-helgina

Nánar

Auður Líf efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar

Blak | 22.01.2017
Auður Líf Benediktsdóttir, efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016
Auður Líf Benediktsdóttir, efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016

Auður Líf Benediktsdóttir blakari hlaut í dag titilinn efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016. Hún var tilnefnd af blakdeild Vestra og Tihomir Paunovski var tilnefndur af blakdeildinni í flokknum íþróttamaður Ísafjarðarbæjar. 

Nánar

Fyrsti bikarleikur Ísfirðinga í blaki

Blak | 21.01.2017

Karlalið Vestra í blaki tekur þátt í bikarmóti Blaksambandsins og er það væntanlega í fyrsta sinn sem blaklið frá Ísafirði tekur þátt í bikarnum. Þeir spila á móti Hrunamönnum á Flúðum sunnudaginn 22. janúar kl. 11.

Nánar

Vestri - Stjarnan B

Blak | 12.01.2017

Kvennalið Vestra í blaki tekur á móti liði Stjörnunnar föstudagskvöldið 13. janúar kl. 20:00. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi. Búast má við skemmtilegum og spennandi leik en lið Vestra hefur verið á mikilli siglingu í síðustu leikjum og er sem stendur í þriðja sæti í 1.deild kvenna. Fólk er hvatt til að mæta og hvetja stelpurnar.

Nánar

Þrír leikmenn Vestra komnir til Danmerkur með yngstu landsliðunum.

Blak | 18.12.2016
U16 ára landslið stelpna og U17 ára landslið stráka á æfingu í Danmörku í dag. Myndin er fengin af Facebook síðu Blaksambandsins.
U16 ára landslið stelpna og U17 ára landslið stráka á æfingu í Danmörku í dag. Myndin er fengin af Facebook síðu Blaksambandsins.
1 af 3

Fimm leikmenn frá Vestra voru á unglingalandsliðsæfingum um helgina. Katla Vigdís, Hafsteinn og Gísli Steinn eru núna komin til Danmerkur þar sem þau keppa með U16 og U17 landsliðunum í undankeppni EM.

Nánar

Fullt hús stiga úr leikjum síðustu helgar

Blak | 14.12.2016
Vestramenn og Hamarsmenn í sátt og samlyndi eftir síðari leikinn. Ljósmynd: Bryndís Sigurðardóttir
Vestramenn og Hamarsmenn í sátt og samlyndi eftir síðari leikinn. Ljósmynd: Bryndís Sigurðardóttir
1 af 7

Kvennalið Vestra vann Ými 3-1 um síðustu helgi og karlalið Vestra sigraði Hamar tvívegis 3-0.

Nánar