Fréttir - Knattspyrna

7.flokkur stúlkna á Petit - Hamingjumóti Víkings

Knattspyrna | 15.08.2026

Stúlkurnar í 7.flokki tóku þátt í Petit - Hamingjumóti Víkings í Fossvogi  lau 15. ágúst.  Stúlkurnar stóðu sig frábærlega og hafa þær verið duglegar að æfa í sumar og tekið miklum framförum Nánar

6.-7. flokkur drengja á Króksmótinu

Knattspyrna | 14.08.2026
1 af 4

 

Drengir í 6. og 7.flokki tóku þátt í hinu árlega Króksmóti um sl helgi. Króksmótið hefur verið haldið á Sauðárkróki í fjöldamörg ár.
Drengirnir áttu gott mót og nutu tímans vel fyrir norðan.
 
ÁFRAM VESTRI 
Nánar

Freyja Rún Atladóttir í U16 kvenna

Knattspyrna | 11.08.2026

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið Freyju Rún Atladóttur til æfinga dagana 19.-20. ágúst. Æfingarnar fara fram á Avis vellinum í Reykjavík.

Innilega til hamingju Freyja Rún Nánar

Vestri með fjögur lið á Rey Cup

Knattspyrna | 04.08.2026

Vestri sendi fjögur lið á Rey Cup mót Þróttar í Reykjavík dagana 22.-26. júlí sl. Rey Cup er alþjóðlegt knattspyrnumót fyrir 3.-4. flokk drengja og stúlkna og hefur verið haldið árlega frá árinu 2002.

Vestri sendi eitt lið í hverjum flokki á mótið, samtals fjögur (11 manna) lið. Frammistaðan var til mikillar fyrirmyndar og urðu t.a.m. 4.flokkur drengja og 4.flokkur stúlkna í 3ja sæti í sínum keppnum!

ÁFRAM VESTRI ⚽️ Nánar

Hálfdán Breki Jónsson valinn í U15 drengja

Knattspyrna | 28.07.2026

Ómar Ingi Guðmundsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið Hálfdán Breka Jónsson til úrtaksæfinga dagana 5.-7.ágúst 2026. Æfingarnar fara fram á heimavelli Þróttar, Avisvellinum í Reykjavík.

Til hamingju Hálfdán Breki og ÁFRAM VESTRI ⚽
							
					<a href=Nánar

Vestra stúlkur á Símamótinu í Kópavogi.

Knattspyrna | 17.07.2026

Vestra stúlkur í 5. og 6. flokki tóku þátt í hinu árlega Símamóti Breiðabliks í Kópavogi 09.-12. júlí sl.

Símamótið sem var fyrst haldið árið 1985 er stærsta knattspyrnumót landsins með um 3.200 keppendur ár hvert.

Að þessu sinni sendi Vestri fjögur lið til leiks, 2 lið úr hvorum flokki. Frammistaða stúlknanna var til mikillar fyrirmyndar og þess má geta að bæði 6. flokks liðin léku til úrslita í sínum  styrkleika flokkum.

ÁFRAM VESTRI ⚽️ Nánar

Æfingafrí hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar 23. júlí - 04. ágúst.

Knattspyrna | 15.07.2026
Æfingafrí verður hjá öllum yngri flokkum knattspyrnudeildar frá 23. júlí - 04. ágúst.
Síðasti æfingadagur fyrir fríið er fimmtudagurinn 23. júlí og sá fyrsti þriðjudagurinn 04. ágúst.
 
ÁFRAM VESTRI ⚽️
							
					<a href=Nánar

Vestri með þrjú lið á N1 mótinu á Akureyri

Knattspyrna | 09.07.2026
1 af 3

Hið árlega N1 mót KA fór fram á Akureyri 01.-04. júlí sl. Mótið sem hefur verið haldið frá árinu 1987 er fyrir drengi í 5.flokki. Vestri sendi þrjú lið til keppni sem verður að teljast vel af sér vikið.
Um sannkallaða fótboltaveislu er að ræða og léku Vestra drengirnir listir sínar fyrir norðan og nutu hverrar mínútu.
 
ÁFRAM VESTRI ⚽️
							
					<a href=Nánar

Vestri kominn heim eftir vel heppnað Orkumót.

Knattspyrna | 29.06.2026
1 af 2

Drengirnir í 6.flokki tóku þátt í hinu árlega Orkumóti í Vestmannaeyjum 24.-27. júní sl.

Stóðu drengirnir sig virkilega vel en Vestri sendi að þessu sinni tvö lið til leiks.

Bæði lið fóru í úrlistaleik í sinni keppni. Vestri fékk svo merkilegustu viðurkenningu Orkumótsins sem eru að sjálfsögðu HÁTTVÍSI verðlaunin. Vestra drengirnir voru sannarlega vel að þeim komnir hvar þeir sýndu frábæra frammistöðu og voru til fyrirmyndar bæði innan og utan vallar.

ÁFRAM VESTRI ⚽️ Nánar

Hálfdán Breki Jónsson valinn í U15 drengja

Knattspyrna | 24.06.2026

Ómar Ingi Guðmundsson, landsliðsþjálfari U15 karla hefur valið Hálfdán Breka Jónsson leikmann Vestra til úrtaksæfinga dagana 25.-26.júní 2026. Æfingarnar fara fram á Avis vellinum í Laugardal.

Um er að ræða eftirfara Hæfileikamótunnar KSÍ og N1 og þar með fyrsta landsliðshóp í árgangi 2012 drengja.

Til hamingju Hálfdán Breki og ÁFRAM VESTRI.

Nánar