Knattspyrna | 01.03.2011
Strákarnir í 2. og 4.flokki fóru saman í æfingaferð til Reykjavíkur helgina 18.-20.febrúar sl. 2.flokkur spilaði tvo æfingaleiki í þessari ferð. Á laugardeginum spiluðu strákarnir við Fjölni og var þessi leikur spilaður í miklu roki, og tapaðist 4-0. Á sunnudeginum spiluðu strákarnir svo við Hamar frá Hveragerði og endaði leikurinn 3-3. Markaskorarar í þessum leik voru Matthias Kroknes og svo skoraði Þorgeir Jónsson 2 mörk.
4.flokkur fór með 2 lið, og spiluðu bæði liðin 2 leiki. Á laugardeginum spiluðu bæði liðin við Leikni og töpuðust báðir leikirnir. Strákarnir voru frekar ryðgaðir til að byrja með enda fyrstu leikir vetrarins, en það lagaðist þegar leið á leikina. Strákarnir sýndu fínt spil á köflum, en náðu ekki að halda leikina út.
Á sunnudeginum spiluðu bæði liðin við Gróttu og töpuðust einnig báðir leikirnir. Eins og í fyrri leikjunum sást mjög gott spil og barátta á köflum, en ekki náðu þeir að halda því út leikina. Strákarnir eru á góðri leið og er næsta verkefni þeirra Greifamót KA helgina 18.-20.mars.
Nánar
Knattspyrna | 01.03.2011
Stelpurnar í 4.flokki gerðu góða ferð til Akureyrar helgina 4.-6.febrúar sl. Stelpurnar tóku þá þátt í Goðamóti Þórs og unnu 4 af 6 leikjum sínum á mótinu. Með þessum sigrum urðu þær sigurvegarar í b-úrslitum og þar að auki voru þær valdar prúðasta liðið á mótinu.
Úrslit liðsins:
KR - BÍ88 0-3
BÍ88 - FH 3-2
BÍ88 - Þór/KA 1-2
BÍ88 - Tindast. 1-4
Fjarðab. - BÍ88 3-3
KR - BÍ88 1-3
Nánar
Knattspyrna | 28.02.2011
BÍ/Bolungarvík 0-1 Fylkir
0-1 Rúrik Andri Þorfinnsson ('80)
BÍ/Bolungarvík tók á móti Fylki síðastliðinn laugardag í Egilshöll. Leikurinn var í Lengjubikarnum en var einnig minningarleikur um Brynjar Þór, fyrrverandi leikmann beggja liða. Goran og Óttar eru ennþá meiddir en Loic Ondo spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa komið á láni frá Grindavík daginn áður.
Nánar
Knattspyrna | 28.02.2011
Lið BÍ/Bolungarvíkur er mikið breytt frá því á síðasta tímabili þar sem stór hluti úr hópnum er horfin á braut í önnur verkefni. Stjórn liðsins leggur því mikið kapp á að styrkja lið fyrir komandi átök í 1. Deildinni í sumar.
Listinn er þannig skipaður
Nánar
Knattspyrna | 28.02.2011
Skotinn Colin Marshall mun vera á reynslu hjá BÍ/Bolungarvík næstu daga. Colin er 26 ára gamall miðjumaður og lék síðast með Crevillente Deportivo í spænsku þriðju deildinni. Colin var í unglingakademíu Aston Villa og vann þar meðal annars bikarkeppni unglingaliða árið 2002.
Síðan þá hefur hann spilað með mörgum félögum - Clyde, St. Johnstone, Falkirk, Airdrie United, Stranraer, Dundee, Forfar og Tiverton Town í heimalandi sínu.
Marshall verður til skoðunar hjá BÍ/Bolungarvík næstu dagana og ef hann stendur sig vel er möguleiki á að hann leiki með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Á vefnum má meðal annars finna
feril Colins á Wikipedia ásamt
grein úr vefmiðlinum "this is Exeter" þar sem Colin er á leið til Spánar og þakkar fyrrverandi félagi sínu, Tiverton Town, alla hjálpina við að koma ferli sínum á stað á nýjan leik
Nánar
Knattspyrna | 25.02.2011
BÍ/Bolungarvík mætir Fylki í Lengjubikarnum á morgun kl. 15 í Egilshöll í Reykjavík. Leikurinn verður minningarleikur um Brynjar Þór Ingason sem lést 19. desember síðastliðinni, aðeins 21 árs gamall. Brynjar lék knattspyrnu bæði með BÍ og Fylki og er sárt saknað. Brynjar kom til Fylkis frá BÍ vorið 2007 og varð Íslandsmeistari með 2. flokki Fylkis sama ár. Hann var svo hjá Fylki til 2009 er hann gekk til liðs við Ísfirðinga að nýju.
Nánar
Knattspyrna | 25.02.2011
BÍ/Bolungarvík hefur fengið varnarmanninn Loic Ondo á láni frá Grindavík en lánssamningurinn gildir út tímabilið.
Ondo gekk til liðs við Grindavík fyrir síðasta tímabil en hann kom við sögu í sautján leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra.
Þessi tvítugi leikmaður kemur frá Gabon en hann lék í Frakklandi áður en hann samdi við Grindvíkinga.
Eldri bróðir Ondo er Gilles Mbang Ondo, framherji Stabæk, en hann var markahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni í fyrra þegar hann spilaði með Grindavík.
Nánar
Knattspyrna | 21.02.2011
BÍ/Bolungarvík tók á móti Haukum síðastliðinn laugardag í Reykjaneshöllinni. Þetta var fyrsti leikur liðsins í Lengjubikarnum og fyrsta skiptið sem liðið leikur í A-deild Lengjubikarsins en sú deild samanstendur af 24 bestu liðum Íslands(Pepsi deild+1. deild). Haukarnir féllu úr Pepsi deildinni síðasta sumar þannig að liðin munu einnig mætast í sumar í 1. deildinni. Í liðið vantaði Goran og Óttar sem eru báðir meiddir. Goran er að jafna sig eftir slæm meiðsli í Lengjubikarnum í fyrra og síðan hafa smávægileg meiðsli verið að plaga Óttar undanfarið.
Byrjunarliðið var þannig skipað:
Þórður - Sigurgeir, Birkir, Atli, Sigþór - Haffi, Gunnar Már, Alexander - Sölvi, Ásgeir G. og Andri
Á varamannabekknum sátu Matti, Nikulás, Addi og Jónmundur
Nánar
Knattspyrna | 18.02.2011
Miðjumaðurinn Sölvi Gylfason skrifaði fyrr í vikunni undir tveggja ára samning við félagið. Hann lék með Skallagrími í 3.deildinni í fyrra en sumarið þar áður spilaði hann 15 leiki í 1. deildinni með ÍA. Sölvi hefur æft með liðinu frá því að Guðjón Þórðarson tók við stjórnun liðsins síðastliðið haust og tekið þátt í flestum æfingarleikjum liðsins.
Sölvi hefur verið með betri mönnun liðsins í undanförnum leikjum. Hann er klókur leikmaður sem vill gjarnan taka af stað með boltann og er ekki ósvipaður öðrum leikmanni liðsins, sjálfum "Herra Bolungarvík" Gunnari Má Elíassyni.
Stjórn BÍ/Bolungarvíkur er gríðarlega ánægð með að fá Sölva til liðs við félagið. Hann hefur sýnt það að hann hefur klárlega getuna til að spila í 1. deild.
Atli, Alexander Veigar, Sölvi og Þórður munu væntanlega allir spila sinn fyrsta mótsleik fyrir félagið gegn Haukum í lengjubikarnum á laugardaginn.
Nánar
Knattspyrna | 15.02.2011
BÍ/Bolungarvík tók á móti Víkingi frá Ólafsvík síðastliðinn laugardag í Akraneshöllinni. Bæði þessi lið komust upp í 1.deild eftir síðasta tímabil og voru leikir liðanna mikil skemmtun. Okkur vantaði Birki, Sölva, Goran og Nikulás í leikinn ásamt því að 1-2 leikmenn voru ekki heilir.
Nánar