Fréttir - Körfubolti

Öruggur sigur gegn FSU í Drengjaflokki

Körfubolti | 16.01.2010
Uppkast
Uppkast
1 af 3
Strákarnir okkar í drengjaflokki spiluðu gegn FSU fyrr í dag.  Leikurinn var jafn fyrstu mínúturnar en í stöðunni 2-5 breyttu Ísfirðingar stöðunni í 11-5 með 9 stigum í röð og litu ekki við það sem eftir lifði leiks.  12 stiga forysta eftir fyrsta fjórðung, 26-14, 22 stig í hálfleik eða 49-27 og svo 32 stiga munur eftir þrjá leikhluta 70-38.  Aðeins var slakað á klónni í 4. leikhluta en að lokum endaði leikur með sigri KFÍ 80-50. Nánar

KFÍ - Njarðvík í Stúlknaflokki á morgun

Körfubolti | 16.01.2010
10. flokkur stúlkna
10. flokkur stúlkna
KFÍ tekur á móti Njarðvík í bikarkeppni 10. flokks stúlkna.  Hefst lekurinn kl. 13.45 og fer fram að Torfnesi.
Allir hvattir til að mæta og hvetja stúlkurnar okkar áfram Nánar

KFÍ-Hrunamenn á sunnudagskvöld.

Körfubolti | 14.01.2010
KFÍ-Hrunamenn = flottur leikur
KFÍ-Hrunamenn = flottur leikur
Sunnudagskvöldið 17. janúar koma hinir harðduglegu strákar frá Hrunamönnum og ætla að selja sig dýrt gegn meistaraflokk KFÍ. Strákarnir frá Flúðum eru sýnd veiði, en ekki gefin. Þeir gefast aldrei upp og þetta verður erfiðir leikur.

Síðati leikur okkar manna var gegn Þór frá Akureyri þar sem við rétt mörðum sigur, en KFÍ hefur tekið breytingum eftir áramót. Matt Sowa er farinn frá KFÍ, en í stað hans eru komnir þeir Hlynur Hreinsson, Denis Hvalek og Igor Tratnik.

Við þurfum að slípa liðið saman og eru mörg kerfi farin og önnur kominn til þess að breyta leikstílnum. Það er von okkar að allir komi á Jakann n.k sunnudagskvöld og hvetji strákana áfram og breji um leið nýja KFÍ menn augum. Leikurinn hefst stundvíslega kl. 19:15

Áfram KFÍ. Nánar

Drengjaflokkur tekur á móti Fsu.

Körfubolti | 14.01.2010
Florijan er beittur
Florijan er beittur
Drengirnir í flokknum eða "drengjaflokkur" tekur á móti Fsu frá Selfoss á laugardag 16. janúar og hefst leikurinn kl.13.00. KFÍ hafði nauman sigur á úrivelli fyrr í vetur og urðu lokatölur þar 52-57. Það má því búast við hörkuviðureign. Við hvetjum alla að koma og hvetja drengina áfram.

Áfram KFÍ. Nánar

Matt á leið í pólsku 1.deildina

Körfubolti | 13.01.2010
Matt er kominn til Póllands
Matt er kominn til Póllands
Fyrrum leikmaður KFÍ Matt Sowa er á leið til liðs PTG Sokol Lancut. Liðið er sem stendur í 5 sæti pólsku 1.deildarinnar og verður gaman að sjá hvernig Matt stendur sig þar. Við óskum honum velfarnaðar.

KFÍ ex player Matt Zowa is signing with 1.division team PTG Sokol Lancut. The team is now in fifth place and we hope that Matt will do us proud. KFÍ thank´s Matt for his effort here with KFÍ. Good luck !! Nánar

Tap gegn Snæfelli/Skallagrími í bikarnum

Körfubolti | 11.01.2010
Hemmi spilaði vel í kvöld
Hemmi spilaði vel í kvöld
Drengjaflokkur tapaði gegn fyrnasterku liði Snæfells/Skallagríms í bikarkeppninni fyrr í kvöld.  Gestirnir náðu flótlega góðri forystu og unnu nokkuð þægilegan sigur 61-86. Nánar

KFÍ-Snæfell/Borgarnes í drengjaflokk á mánudagskvöld.

Körfubolti | 09.01.2010
Bring it on :)
Bring it on :)
Drengjaflokkur KFÍ fær Snæfell/Borgarnes í heimsókn á mánudagskvöld. Gestir okkar eru feykisterkir og eru í efsta sæti í riðlinu, en það þýðir ekki að KFÍ ætli eitthvað að gefa þeim leikinn :) Þetta verður hörkuleikur og hefst hann kl. 17.30 og eru allir hvattir til að mæta og hvetja þá áfram !!!

Áfram KFÍ  Nánar

Myndir frá leik Þórs og KFÍ.

Körfubolti | 09.01.2010
Hér er Rúnar fyrir miðri  mynd, en hann líkt og margir myndasmiðir eru feimnir við að láta mynda sig :)
Hér er Rúnar fyrir miðri mynd, en hann líkt og margir myndasmiðir eru feimnir við að láta mynda sig :)
Myndasmiðurinn og orkuboltinn Rúnar Haukur Ingimarsson er iðinn við að taka myndir af leikjum í körfuboltanum og hér er tengill á myndir sem hann tók í gærkvöld í leik Þórs og KFÍ. Við hjá KFÍ kunnum honum kærar þakkir fyrir

Linkurinn er hér. http://www.runing.com/karfan/thor_kfi/index.html Nánar

Baráttusigur gegn Þór Akureyri

Körfubolti | 08.01.2010
Gaman, Saman !!!
Gaman, Saman !!!
Það voru þreyttir drengir sem stigu inn í íþróttahús Síðuskóla á Akureyri og leikurinn ekki hafinn ! Ástæða þess var glerhálka var meirihluta leiðarinnar og lappirnar steinsofandi. Við mættum með gjörbreytt lið að hluta þar sem Matt hinn stóri er farinn á vit ævintýranna í Póllandi og í hans stað kominn tvítugur drengur frá Slóveníu Igor Tratnik
Nánar

KFÍ liðið klárt fyrir seinni hluta móts

Körfubolti | 08.01.2010
Lið KFÍ 2010
Lið KFÍ 2010
Þá er lið KFÍ klárt fyrir átök seinni hluta móts. Þrír menn hafa bæst við lið KFÍ. Nú rétt eftir áramót kom Hlynur Hreinsson til okkar og er mikill styrkur í dreng. Hann verður í miklu hlutverki hjá drengja og meistaraflokk og ætlar sér að vinna sér fast sæti þar.
Og okkar var að berast í hús leikheimild fyrir þá Igor og Denis. Það var ekki auðvelt að lenda því enda varð að berast LOC frá Quatar og Slóveníu og má að gamni setja inn að vinnuvikan í Quatar er þannig að á föstudögum er allt lokað, en svo byrjar vikan á laugardegi þegar allt er lokað hér heima :)
En allt er gott sem endar vel og allt klárt fyrir leikinn í kvöld. Hérna fyrir ofan er mynd af liðinu eins það er nú eftir áramót.

Áfram KFÍ. Nánar